Hk mætir Breiðablik á föstudaginn kl 17:15 á Kópavogsvellinum. Um er að ræða síðasta leik þeirra í 1.deildinni í sumar og síðasta leik breiðabliks og Hk í allavegana eitt ár þar sem breiðablik hefur tryggt sér sæti í Landsbankadeildinni.
Sparisjóður Kópavogs ætlar að bjóða okkur frítt á leikinn, ekki bara okkur, heldur öllum sem er glæsilegt því það kostar 1000 krónur á leikinn, glöggir ættu að vera snöggir að átta sig á því að 1000 kr dugar fyrir sixpack í átvr =sixpack + frítt á leikinn + gott veður = góður dagur. Við ætlum að hittast eitthvað fyrr um daginn og hópfjölmenna á hann, þið sem hafið áhuga (hjallar)þefið það bara uppi eða mætið á menningarmiðstöðina í kvöld . Þannig þið sálir auranna getið núna sebrað til að mæta á leikinn.
+++ þið eruð hvattir til að mæta í nýju hjallapeysunum og það er hægt að kaupa þær annað kvöld á 1500 kjell síðasti séns beibí aðeins 4 eftir....
Guðjón mun leiða stuðblikana að vanda, hægt er að fylgjast með þeim á www.blog.central.is/studblikar
Leikir Hk og Breiðabliks gjörsamlega bjuggu til hugtakið "Derby" leikur, en þessi leikur verður engin undantekning, Breiðablik með sárt ennið eftir að KSÍ og HK neitaði að verða við ósk þeirra um að fá bikarinn afhenntann á þessum leik, sem er óskiljanlegt en engu að síður, þá eru þeir brjálaðir útí HK og sagan segir að þeir ætli sér að endurtaka söguna að ári þegar Raggi (kjöti aka Beini 6000) tók sig til og drullaði 5 mörkum inn.
Í viðtali okkar við Stebba Mini Me Gel bróðir Antons Tony Horny Pony Turbo zetts hjallameðlims, kom fram að leikurinn myndi enda 5 - 2 Hkingum í vil, og að menn einsog Ási, Thorinn, Finnur væru í vígahug enda verður þetta lokaorrustan í annars skemmtilegu stríði milli liðanna í bili.
Ótrúlega dýrmæt stig fyrir HK, en fyrri leikur liðanna endaði 1-1 eftir að ksí lét alnafna forseta lýðveldisins íslands dæma leikinn og var undir áhrifum hampjurta að sögn manna sem til þekkja.Ð".....fÐÐ$??#$$..
Ég tryllist ef mitt lið tapar og ég sver það ég ætla að fara gráta ef það gerist, sver það.
Darri Gambler hefur sett upp veðbanka í kjölfar leiksins,
Rapp sem verður sungið í hléinu..
Þessi texti er saminn við Lagið úr Gangsters Paradise sem Coolio gerði svo ódauðlegt.
Rauðir grænir hvítir
hlustaðu á mig er ég geri bítið
hver er að tóga wídíð
pú tiss pú pú tiss(takturinn)
Mætum í hettupeysu með bumbu og bjór
Syngjum nú saman öll í kór!!!!!
pú tiss pú pú tiss(takturinn)
(Viðlag, sungið hátt í flötum g dúr)
Í KÓPAVOGI STÖNDUM VÉR SAMAN ÓSUNDRUÐ
HJALLARNIR REPRIZENTA TVÖHUNDRUÐ
pú tiss pú pú tiss(takturinn)
Fæddumst í skúmaskoti milli blokka
með könnu í annarri og í hinni hvítan svan
erum í Hjöllunum, sem er fokking gefið van.
pú tiss pú pú tiss(takturinn)
Mattías Jocumsen
Yfir.